þriðjudagur, september 27, 2005
Nýtt blogg!
Hef ákveðið að prófa að blogga á nýjum stað, HÉR og setja m.a. upp nýtt myndaalbúm þar sem það er 100x aðgengilegra og auðveldara á allan hátt!
Tékkið á því:)
www.123.is/marinus
Adjö adjö!
Þórunn
Tékkið á því:)
www.123.is/marinus
Adjö adjö!
Þórunn
föstudagur, júlí 29, 2005
löngu búin að pakka mar!!!
Góðan daginn allan daginn:)
Ég er sum sé ekki búin að vera dugleg að blogga hér og sennilega allir lööngu hættir að kígga hér inn.
Er annars búin að vera að vinna á fullu síðan ég kom heim 7.júní, tók mér þó frí um síðustu helgi þar sem Pia, finnsk vinkona mína sem var með mér í skólanum úti og kærasti hennar, Mikke, komu og heimsóttu mig. Ég og Nonni sóttum þau á Keflavík og rúntuðum með þau um landið: Bláa Lónið, Þingvelli, Gullfoss-Geysi, yfir Kjöl, Mývatnssveit, Dettifoss, hvalaskoðun Húsavík... nóg að gera! En þau fengu þetta þvílíkt góða veður alla dagana... annað eins ekki sést á Íslandi fyrr held ég bara. Við Nonni ætlum svo að reyna að heimsækja þau til Finnlands í vor:)
Annars er það bara vinna fram undan, háönnin á fullu og sennilega ekki slakað mikið á fyrr en 1. sept. erum búin að bóka flug til Köben þá!! Vííííí:)
Ég er búin að taka slatta af myndum í sumar og ætla að reyna að koma þeim inná netið (albúm 2) sem fyrst.
Eigið góðar stundir.
Þórinsky

sunnudagur, júní 05, 2005
Heim á morgun!
Þá er dagurinn runninn upp: PÖKKUNARDAGURINN MIKLI! ;)
Búin að hugsa dáltið mikið um þennan dag, velta því fyrir mér hvernig í ösköpunum mér eigi að takast að koma öllu draslinu mínu niður í töskurnar, komast með allt út á flugvöll og sleppa við það að borga fúlgur í yfirvigt! Þetta er því spennandi lokasprettur framundan! Ég er með eina ROSA stóra tösku sem er endalaust hægt að troða í en það má víst bara hafa 20kg og ég er nú þegar komin yfir það og taskan ekki full ennþá!!! Hvernig er þetta hægt?
Í gær var ég soltið sniðug... fannst mér amk! Ég fékk kassa hjá póstinum og tróð í hann öllum bókum og tveimur pörum af þungum skóm og samtals urðu þetta 10 kíló (sem var hámarkið að senda í þessum kassa). Svo fannst mér eitthvað svo ómöguleg tilhugsun að bögglast með 10kg kassa niðrí bæ, hélt að hendurnar myndu líklega detta af mér svo ég þurfti að hugsa eitthvað sniðugt upp til að koma kassanum alla leið án þess að ég yrði handlama. Það hefði verið sniðugt að hafa svona pokakerru eins og allir sænskir eldriborgarar eiga og nota gjarnar þegar þeir fara að versla og staðinn fyrir að halda á plaspokum heim draga þeir góssið í pokakerrunni sinni sem gjarnan er röndótt og vægast sagt hallærisleg!! En ég átti enga röndótta kerru og því góð ráð dýr! Þá kom ég auga á hjólabretti sem litli strákurinn á hér heima:) Málið leyst! fékk mér spotta og batt í brettið og dró svo gula kassann frá póstinum á brettinu niðrí bæ og niðrá pósthús! hehe.. sjáið þið þetta ekki fyrir ykkur: flestir eru með svona smáhunda í bandi en Þórunn kom röltandi með gulan pappakassa á hjólabretti!! :o) En þetta svínvirkaði og ég get alveg mælt með þessu.
Jæja lömbin mín, ætla að halda áfram að pakka og leggja á ráðin!
Have a good one!
Thorinsky

Ég og tvær af þeim finnsku, Pia og Marja. Tekið sl. fimmtudag. Kíktum nokkur í bekknum út og fórum m.a. í KungsträdgÅrden Þar sem stendur nú yfir árlegt festival "Smaka på Stockholm" þar sem veitingastaðir í bænum eru með kynningu og fólk getur fengið að eta og drekka fyrir sanngjarnt verð!

miðvikudagur, júní 01, 2005
Lite om Norgesbesök
Jæja þá...
Ég kom heim frá Norge í fyrradag (mánudaginn) eftir vel heppnaða ferð:) Fyrstu tvær næturnar var ég hjá Sigþrúði (systur pabba) og co. á Klöfta. Við Hildur kíktum smá í bæinn á föstudagskvöld en vorum báðar eitthvað þreyttar svo við fórum snemma heim (það er svona þegar árin verða fleiri verður úthaldið minna!!). Tókum því svo rólega á laugardaginn en Haukur frændi bauð okkur svo í mat, fengum dýrindisfiskrétt! :) Á sunnudaginn fórum við Hildur í heimsókn til Abba (bróður mömmu) á Granveien og eftir það smá í bæinn. Tókum svo kettina hennar Hildar á Klöfta og keyrðum til Fredrikstad. Hildur sýndi mér skólann hennar og við hljóluðum aðeins um í gamla bænum sem er ótrúlega fallegur, minnir að sumu leiti á Gamla Stan hér í Stokkhólmi en hann minnti mig líka á Kalmar í S-Sverige, þar sem ég var fyrir þremur árum. Hildur galdraði svo fram ljúffenga pizzu í eldhúsinu um kvöldið. Ég fór svo með Hildi í skólann og fylgdist með í smá stund áður en ég keyrði svo til baka til Klöfta. Flaug svo til Stokkhólms seinnipartinn.
En nú er bara eitt próf eftir hjá mér, málfræði á laugardaginn og ég er eitthvað að reyna að kíkja í bækurnar en það er ótrúlega margt annað sem lokkar!! skil það ekki;)
Ég er búin að setja fullt af myndum í albúmið og reyndar svo mikið að það fylltist!! er búin að búa til nýtt albúm og þar eru myndir frá Norge. Nennið þið að gera mér smá greiða, skrifa hér í comment hvort þið getið komist inná albúmin eða ekki?? mér gengur alveg ljómandi að komast inná þau en það er eins og það sé eitthvað mislétt.
Annars er ágætis veður hér í dag, hálf sól og ca 15-17 gráður. Þeir eru nú samt að kvarta yfir kulda og sólarleysi hér undanfarið... ég er nú bara fegin að það er ekkert of heitt hérna núna, þá yrðu viðbrigðin of mikil við að koma heim!!!
Gott í bili,
Adjö adjö

föstudagur, maí 27, 2005
Heja Norge!?!
Jæja þá ætla ég að leggja land undir fót og skreppa yfir landamærin til Noregs! Ætla að heimsækja Hildi frænku og einhvern slatta af öðru frændfólki:)
Annars var ég í prófi nr. 2 í morgun (skriftlig färdighet/läsfärdighet) og gekk það bara alveg áfallalaust fyrir sig. Svo er eitt próf um miðja næstu viku og síðasta á laugardaginn eftir rúma viku. Flýg svo heim mán. 6. júní (þjóðhátíðardagur Svía!). Það verður nú hoppsumhí og trallalæ en nú er þjóðhátíðardagurinn í fyrsta skiptið "rauður dagur" og því líklegt að menn arki um allar götur með blöðrur og fána... "hæ hó jibbíjeij og jibbííiijeij, það er kominn sjö-ötti júní" ...passar ekki alveg eins vel, enda held ég að svenskarnir kunni ekkert þennan söng! ;o) Þarf endilega að komast að því hvort þeir hafa svona lög eins og Öxar við ána o.þ.h.
Hér er búið að vera fínasta veður undanvarna daga, kringum 15-22° og ýmist sól, skýjað eða smá rigning... voða gott fyrir gróðurinn erþakki?! ;) og ég farin að kvíða því að koma heim í frostið og fönnina... Það væri nú helv... gaman ef hægt væri að kippa þessu í liðinn áður en ég kem heim! Hver býður sig fram?
Jæja góðir hálsar, ætla að fara að skoppa út á flugvöll og sjá hvort þeir vilja ekki fljúga með mig til Osló!
Trevlig helg allihopa! <;o)

mánudagur, maí 23, 2005
Sniðugt í Stokkhólmi! ;)
- Svíum finnst mjög gaman að standa í röð! Amk mætti oft halda það því það fyrsta sem svíi gerir þegar hann kemur inn í banka eða á póshús er að svipast um eftir númeramaskínunni svo hann geti nú fundið sér blett til að standa á. Og honum finnst ekkert athugavert við það að þurfa að standa í röð til að fá raðnúmer til að komast að í aðalröðinni!
- Í matvöruversluninni fá náttúrulega allir að standa í röð líka til að komast að kassanum, voða fjör. Ekkert ólíkt því sem gerist í Kaskó. Í Kaskó eða Bónus er það þó oftast þannig að maður er að flýta sér ofsa mikið og sturtar því öllu gummsinu úr körfunni á beltið og kassadamann/herrann alveg svitnar alveg við að rúlla því sem hraðast í gegn. Þannig er það alls ekki í Stokkhólmi. Þar er gjarnan miði við endann á færibandinu þar sem ég er vinsamlegast beðin um að raða vörunum mínum á færibandið í einfaldri röð og snúa strikamerkinu að mér! Væntanlega ætlað til þess að kassadaman/herrann geti þrusað þessu létt í gegn en samt er eins og þau séu ekkert að skilja það og taka sér alltaf svo ótrúlega góðan tíma í að handleika hverja vöru og nota gjarnan báðar hendurnar til að færa smjörið í gegnum geislann. Kannski þau séu að spá í hvort ég hafi nú valið rétt smjör, hvort nákvæmlega þessi tegund hæfi mér því hér eru sko til margar tegundir af smjöri, maður lifandi!! Ein skemmtileg saga þar sem smjör kemur við sögu. Ég var stödd í matvöruverslun niðrí bæ um daginn og var að reyna að velja mér hrökkbrauð sem er hrikalega erfitt því það eru jafnvel fleiri tegundir til af því en smjörinu. Þá víkja sér að mér amerísk hjón og spyrja mig hvort ég viti hvar smjörið sé! Ég segist nú halda að það sé bara þarna í kælinum ásamt hinum mjólkurvörunum og þá voru þau búin að vera þar og eyða dágóðum tíma í að pæla í þessu en gátu bara ekki trúað því að það væri heil hylla bara fyrir smjör! Héldu að þetta hlyti að vera eitthvað allt annað!
- Röð og regla kemur líka mikið við sögu í ríkinu þeirra (ÁTVR = System Bolaget) nema þar er þetta ennþá nákvæmara því þar eru hvítmálaðir hringir á færibandinu og þú leggur eina flösku eða bauk í hvern hring, og eins gott að strikamerkið snúi að þér! Ég hef átt í basli með að hitta alveg inní hringina hingað til... hvernig ætli aumingja rónarnir fari þá að???
- Eitt mega svíarnir þó eiga að það er mun auðveldara að lesa blöðin hér en á Íslandi. Ekki að þau séu eitthvað betur skrifuð heldur eru þau svo snilldarlega heftuð saman og í minna broti. Það er því alveg hægt að lesa blaðið vandræðalaust án þess að vera alltaf að berjast við að halda því saman í einu lagi allan tímann! Sniðugt í Stokkhólmi!
laugardagur, maí 21, 2005
Ís sem frýs!
Norðurlandabúar eru meðal mestu ísæta í heiminum.
Í fyrsta sæti eru þó Nýsjálendingar sem sporðrenna að meðaltali 25 lítrum á ári á hvern íbúa. Í öðru sæti eru Ameríkanar með rúmlega 20 lítra á man nog Kanadamenn með tæpa 20. Svíjar eru í 6. sæti með nær 15 lítra af ís á ári og rétt á eftir kom Finnar með örlítið minna en Svíjarnir. Í áttunda sæti eru Danir með tæpa 10 lítra á ári (Heimir ekki talinn með!). Á eftir þeim koma Ítalir og Þjóðverjar og Frakkar sem eru enn slakari, klára ekki af nema ca. 5 lítra af ís á ári á hvern íbúa.
Íslendingar eru ekki nefndir í þessari upptalningu en ég býst fastlega við því að við séum nálægt heimsmetinu í ísáti eins og svo mörgu öðru! ;)En ég er ekkert hissa á því að Svíjar séu ofarlega á þessum lista því hér eru til ótrúlega margar tegundir af ís: margskonar ís í brauði, ískúlur og síðast en ekki síst ÍSPINNAR! Svíjar bíða nefnilega spenntir á hverju vori eftir ”ísfrumsýningunum” þ.e. hverjar eru ísnýjungarnar þetta árið og má sjá auglýsingar í blöðum, sjónvarpi, á strætóbiðskýlum og í neðanjarðarlestunum um alla nýju ísana. Í blöðunum eru einnig birtir dómar um bestu nýliðana og góða og slæma eiginleika þeirra. Svo er auðvitað alltaf einhverjir ”diet” pinnar kynntir: ”einungis 1% fita” o.s.frv.
En það eru ekki allir jafn hamingjusamir með alla þessa fínu íspinna! Þær Elisabeth Kaleebi og Kristina Larsson hjá Jafnréttisstofunni í Malmö halda því fram að a.m.k. tveir af íspinnum GB-Glace (sem er leiðandi ísframleiðandi í Svíþjóð) séu með tilvísanir sem séu með öllu óviðunandi. Ísarnir sem um ræðir heita ”88” og ”Nogger Black”. Nogger Black segja þær að vísi til kynþáttahaturs og 88 til nasisma. Jakkar nasista hafi verið merktir með tölunni 88. Einnig sé bókstafurinn H númer 8 í stafrófinu og muni því 88 vera dulmál fyrir Heil Hitler. Forsvarsmenn GB-Glace hafa ekki í hyggju að breyta nöfnunum á ísunum og vísa þessum ásökunum á bug. Talsmaður fyrirtækisins bendir á að annar ís GB, ”Igloo Cola” hafi einnig orðið fyrir aðför þar sem því sé haldið fram að hann ýi að kókaínneyslu eskimóa.
Dæmi svo bara hver fyrir sig!

Þær Elisabeth og Kristina eru lítt hrifnar af 88 og Nogger Black!

þriðjudagur, maí 17, 2005
Stokkhólmur-Grisslehamn-Eckerö-Mariehamn
Hej allihopa!
Skrapp til Álandseyja á föstudaginn, dagsferð frá Stokkhólmi sem var þannig að fyrst var það tæplega 2 tíma rútufbílaerð til Grisslehamn þaðan sem ferjan fer yfir til Eckerö á Álandseyjum. Þaðan var svo aftur nærri klukkutími í rútu til Mariehamn sem er aðal pleisið, 10.600 íbúar. Mjög vinalegur bær og minnti mórallinn nú bara á eitthvað íslenska sjávarþorpið, reyndar aðeins stærra. En þarna þekktist fólk útá götu og tveir bílar með háværri músíkk og drengjum með öl í hendi hringsóluðu um Garðarsbrautina. En Álandseyjar samanstanda af um 6.500 eyjum en í dag eru 65 byggðar og búa þar alls 26.200 manns. Á stærstu eyjunni er sem sagt Mariehamn og bærinn sá á tvær hafnir, austari og vestari. Ég byrjaði á því að skoppa þeirra á milli, í austari eiga m.a. heima tvær skonnortur, Linden og Albanus en aðeins Albanus var heima. Í þeirri vestari á liggur hins vegar Pommern sem er 4 mastra fraktskúta byggð 1903 og er eina fraktskútan frá þessum tíma sem er varðveitt í uppranalegri mynd í heiminum! Skoðaði hana sem snöggvast en þetta er ótrúlega flott skip með magnaða sögu! Svo rölti ég um í miðbænum og það var bara góður stemmari á eyjaskeggjum. Seinnipartinn hoppaði ég svo aftur uppí bussinn og rúllaði til Eckerö, tók ferjuna til baka og svo aftur 2 tíma í annarri rútu! Sum sé komin með alveg ársskammtinn af rútubílum því þetta er alls ekki minn uppálhaldsferðamáti!
Það var hins vegar kapítuli út af fyrir sig að fara með ferjunni. Þar sem Álandseyjar eru ekki í Evrópusambandinu er fríhöfn um borð og hvað haldið þið að svíjalingarnir stundi? Nema hvað að kaupa sér far með ferjunni fram og til baka (kostar nú bara innan við 400 kall ísl.), versla öl í fríhöfninni, fara frá borði en svo strax aftur um borð og heim aftur. Drekka svo helst soltið mikið um borð og rúlla svo á eftir sér bjórkassakerrunum sem hægt er að kaupa í fríhöfninni heim glaðir í bragði með feng dagsins!;)
Ég keypti nú enga kassa af bjór, fékk mér reyndar einn með kjötbollunum sem ég snæddi á leiðinni heim:)
En þá er ekki fleira í þættinum í kvöld... veriði sæl.
ps. setti inn nýjar myndir í albúmið, veit reyndar ekki hvernig fólki gengur almennt að komast inná það... þið kannski látið mig vita;)
Botten upp!

miðvikudagur, maí 11, 2005
problematiskt
Jæja, það gengur víst eitthvað illa með þetta blessaða myndaalbúm. En ég setti nokkrar myndir hér á bloggið í staðinn, vona samt að albúmið fari nú að hressast!;)
ps. það hefur samt stundum virkað hjá mér að leyfa explorer að tyggja á glugganum, þ.e.a.s. ef eitthvað er að gerast og ekki kemur bara "The page cannot be displayed", og þá stundum kemur þetta upp eftir 5-10 mín! sem er náttúrulega óþolandi, en samt ;)
Ha en fortsätt trevlig dag! ;o)

Heimir og Guðrún komu í heimsókn helgina 30.apr til 1.maí. Borðuðum Sushi fyrsta kvöldið, voða gott og þess má geta að nú er ég gjörsamlega húkkt á Sushi!!!